
Það hefur ekki gefist tóm til að skrifa mikið að undanförnu. Ég sótti Birtu til Kaupmannahafnar og stoppaði hjá litlu fjölskyldunni í nokkra daga. Þann 2. júlí flugum við svo heima á leið eftir mikið vafstur á Kastrup. En vesenið var sko ekki búið. Þegar til Íslands kom var ekki

hægt að lenda á Akureyri vegna mikillar þoku og eftir að sveima yfir Eyjafirðinu í hálfa aðra klukkustund var lent á Egilstöðum og keyrt til Akureyrar. Farþegarnir voru mjög fegnir, því fyrst var okkur sagt að við yrðum að lenda í Reykjavík með tilheyrandi akstri norður! En heim komumst við klukkan þrjú síðdegis í stað þess að vera mætt í morgunmat. Síðan hefur verið mikið um að vera hér í Möðruvallastræti. Fyrst fengum við heimsókn um

helgina 8. júlí. Einn af vinum Jóns var að koma með son sinn á fótboltamót og gisti hérna hjá okkur. Hálfum mánuði síðar komu systurnar mínar með skylduliði og var gist alls staðar. Í kjallaranum og úti í garði. Þann 30. júlí kom svo Kristín með Helga litla og 1. ágúst kom Rebekka. Svo hér hefur verið mikið fjör og gaman í sumar. Um miðjan mánuðinn mun svo allir halda til síns heima og Helgi byrja aftur að kenna. Ég ætla líka

að fresta öllum pistlaskrifum þangað til.
Við sendum Dísu mágkonu síðbúnar afmæliskveðjur í tilefni gærdagsins og vonum að hún hafi átt góðan afmælisdag.
Við látum fylgja með nokkrar myndir frá fjölskylduheimsókninni. Efst erum við Helga systir, svo er mynd af Birtu og Guðrúnu að borða vöfflur á sveitamarkaði, mynd af Njarðvíkurgenginu í jólagarðinum og síðast en ekki síst, Birta og Hulda Ólafía að ríða röftum í jólagarðinum. Ef þið smellið á myndirnar þá birtast þær í stærra formi. Sigga, Þórdísi, Jóni, Gerði og Daða tókst einhvern veginn að sleppa framhjá myndatökum.
Hjartans kveðjur til ykkar allra með þakklæti fyrir frábærlega skemmtilega en allt of stutta heimsókn.